Umhverfið & staðurinn / Things to do


 


 

Hér er smá listi um sérstöðu þessa svæðis:


Stærstu gljúfur Evrópu
Reiðskólar og hestaleigur á hverju strái
Námskeið í matreiðslu á bóndabæjum
Seld veiðileyfi á vægu verði fyrir lax og silung (ræktaðan)
Siglingar af öllu tagi
Göngu- og hjólreiðaferðir og óviðjafnanlegt utsýni
Þessi listi er enganveginn tæmandi. . .

 
 
 

Esparron de Verdon er lítill, falinn gimsteinn í hjarta efra Provence. Þorpið er í 350 m hæð og stendur við vatn sem ber heiti þorpsins, Lac d’Esparron.
 

Vatnið var gert af franskri Landsvirkjun seint á sjöunda áratug síðustu aldar og hefur gerbreytt ásýnd þorpsins til hins betra. Sjálft þorpið byggðist eins og flest frönsk þorp í kringum kastala sem reistur var á 13. öld, á svipuðum tíma og Snorri Sturluson skrifaði Eddu í Reykholti. 

Helsta tekjulind kastalaherrans var brúartollur af hverri kind en vaninn var og er enn að reka allt fé til fjalla upp í Alpana á vorin og svo aftur til byggða á haustin. Fjárhirðar fylgja raunar hjörinni allt árið. Nú er þessi brú á 30 metra dýpi í gljúfrinu  en Verdon-gljúfrið og vatnið eru eftirsótt til alls kyns siglinga og sunds.



Vélknúnir bátar eru bannaðir nema þeir sem knúnir eru rafmagni.  Hægt er að fá margar gerðir báta leigða f. sanngjarnt verð.
Hestaleiga er einnig á staðnum og reiðskóli. Upplagðar dagsferðir geta verið til Aix-en-Provence, St. Tropez, Monaco ..

Þorpið er agnarlítið en státar þó af þremur ágætum veitingastöðum, búð, bakaríi og “alt mugligt”-verslun auk minjasfns, keramik-verkstæðis og vinnustofum listmálara að ógleymdu góðu félagsheimili þar sem oft eru haldin böll og aðrar uppákomur.

Þar (og í kastalanum) hef ég skipulagt íslensk-franskar tónlistarhátíðir undanfarin 6 ár.

Segja má að hjarta þorpsins slái í tveimur samliggjandi boules-völlum en þar spila þorpsbúar og gestir pedanque eða einfaldlega “boules” daglega nema þegar rignir (sem er u.þ.b. 15 sinnum á ári).





Þorpslífinu hér er best lýst með orðinu friðsæld að því undanteknu að í júlí og ágúst koma kannski fullmargir gestir en þá er líka líf og fjör og þorpið iðar af lífi.

Landslag í Efra-Provence er mjög sérstætt. Þar skiptast á hásléttur þar sem ræktað er hveiti eða lavender og dalir þar sem ræktaður er vínviður eða ávextir. Jarðvegur er hrjóstrugur en samt er landið allt skógi vaxið, mest sígrænum eikar- og furuskógi. Hér er því alltaf grænt og himinninn nær alltaf blár.

Náttúrufegurð er mikil og þorpin fjölbreytt og bera ríkulegar menjar, einkum eftir Templar-riddaranna sem hér réðu ríkjum um aldabil. Rómuð náttúrufegurð er ekki síst í Gorges de Verdon sem eru skammt frá.

Á vetrum er stutt á fjölmarga skíðastaði og á sumrin er klukkutímaakstur til strandar, t.d. til St Tropez eða Nice (tæpir tveir tímar).

Góður golfvöllur (Pierrevert) er í um hálftíma akstursfjarlægð.

Lærðu smá frönsku áður en þú ferð af stað!

BBC býður upp á skemmtilegt námsefni í frönsku fyrir byrjendur sem lengra komna. Einnig er hægt að mæla með námefninu Talk French (bók + geisladiskar) fyrir ferðalanga, með öllu því helsta sem þarf til að bjarga sér.




Yfirlit um Frakkland - land og þjóð
 

Gönguferð um Provance

GÖNGUFÓLK ATH!

   
 
 


Things to do and see
 

 

 

Activities in beautiful Provence are endless: biking, hiking, dining, wine tasting, local events and antiques just to name a few.

The colorful and historic towns of Avignon, Nimes, Saint Remy, Les-Baux-de-Provence

The yachting heavens St. Tropez and Cannes are less than 2 hours to the south.

Marseille International Airport is about one hour away with numerous daily flights.
 


 

 

Local sporting activities include: all kinds of water sports such as rowing, sailing, electrical boats, canoeing, diving, swimming and riding excursions
 
Try the local products and cuisine: The locals say they have the best olive oil in the world, garlic, and all kinds of fresh vegetables. The local lamb is excellent and so is the lapin, wild boar, hares, and storks! The local wines are good to excellent both red, white and rosé.

Local produce and shopping: Most shopping is done on markets local and there is one almost everyday in some neighbouring village. Over the summertime there is a market in Esparron. The markets sell all kind of food directly from the producer , local artefacts and clothes.

Now the water is a great attraction for all kinds of non motorised water sports (electric outboards only). A 6.40 meter sailing boat can be included in the rent free of charge but a permit is necessary.

 

The village is small but has 3 good restaurants, shops a folklore museum a pottery and an artists studio as well as a community hall where dances and other activities take place and also where the Provence ---- Iceland music festivals have been held for the last 6 years.

 

The real heart of the village is the boules field where the locals play pétanque almost every day of the year except when it rains (maybe 15 times a year).

 

The life in this wonderful village is truly peaceful.

 

 

 


Enjoy the sounds and the silence of the mountains.

There are also serveral things to do:
 

 

 
  • Long and short walks all around the house.
     

  • Ambert market on thursday morning. 15 min.
     

  • Visit the La Chaise Dieu Abbey. 30 min.far from home
      Read about  
    La Chaise-Dieu on Wikipedia.
     

  • The XIV° Frescos in Novacelles church. 30 min
     

  • Vulcania Park over Clermont Ferrand. 1h 15
     

  • Marvellous walks from Pierre sur Haute, from where you will admire
     

  • In sunny weather; The great Mont Blanc. 1h.
     

  • St Nectaire village where the famous cheese is made. 1h15
     

  • The wine yard of Boudes near Issoire. 1h

 

 
     
  Allar upplýsingar eru hjá Ármanni Erni
All information here: Mr. Armannson
Tous l'information ici Mr. Armannson
 
     
 

BACK